04. maí 2009 klukkan 14:38
Sælar mínar kæru.
Hér kemur lokaniðurstaða.
Við hittumst í aqua spa kl 18 föstudaginn næstkomandi með sundföt, handklæði, snirtidót, betri föt og auddað góða skapið.
Fáum fótabað og maska, förum í pott og gufu græjum okkur og ákveðum hvar skal BORÐA svona svo það komi fram, að við ætlum að borða eitthvað.
Verð er 2600 á mann.
Allir að kommenta hér sem ætla að koma svo við vitum nákvæma tölu
Hjúkku skvísur
03. maí 2009 klukkan 20:51
Sælar kæru LESpíur nær og fjær, hvað segið þið þá í þessari kærkomnu prófatíð???
Ég er hérna með smá hugmynd að dekur og kósýheitum til að verðlauna okkur eftir prófin og þarf að fá fjölda þeirra sem vilja vera með uppá verð og hvort staðurinn er laus.
Að við myndum hittast í aqua spa kl 18 eða 19 á föstudaginn, fá þar slopp og fótabað, andlitsmaska, fulla sörves með hvítvín eða rauðvín og skella okkur svo í pottinn og gufubað, setja uppá okkur hawaii meiköppið og skella okkur saman út að borða fyrir hitting á amor kl 21.
Svo endilega lítið uppúr skruddunum.. látið hugan reyka til föstudagsins og látið vita hvort þetta er eitthvað sem þið væruð til í að gera.
KV yfirlespíurnar Katla og Lára Kr
Hjúkku skvísur
30. apríl 2009 klukkan 17:22
Sælar Ladies.....
Ég sit hérna inn á bókasafni og hugurinn leitar alltaf eitthvað annað!!!
Spennan er svo mikil að klára prófin að ég er alltaf að hugsa um föstudaginn 8 maí:)
Mig langar til að forvitnast hvort það er einhver áhugi fyrir því að gera eitthvað saman fyrir kvöldið... Er búin að detta ýmsar hugmyndir í hug.....
T.d:
Fara í lazertag....
Fara í sund.... gætum farið úr lazertaginu og brunað í Sundskálann í svarfaðardag eða sundlaug dalvíkur
Borðað saman....
Æjjjj bara fékk þessa hugmyndir og langaði að athuga hvort einhverjar hefðu áhuga?????
Endilega kommentið.....
Out
Þórgunnur
Hjúkku skvísur
04. mars 2009 klukkan 14:45
Sælar elskurnar mínar !
Í sambandi við árshátíðina. Hverjar ætla að mæta ? Ég skráði okkur saman á borð og skrifaði að við verðum 10. Það er ekkert heilög tala, enda er ég ekki með það alveg á hreinu hverjar ætli að mæta. Svo ef ÞÚ ætlar, og átt eftir að kaupa þér miða, þá ertu skráð á borð undir mínu nafni

og lætur dömurnar vita sem selja miðana.
Lára Kristín
Hjúkku skvísur
03. febrúar 2009 klukkan 11:44
Sælar dömur.
Vildi bara minna ykkur á saumaklúbbinn annað kvöld en hann verður heima hjá mér í Smárahlíð 8, (Norðan við sunnuhlíð) Komið bara svona um átta leytið :)
Sjáumst!
Dagný Sif
Hjúkku skvísur
22. janúar 2009 klukkan 17:27
Blessaðar... Langaði bara rosalega mikið að benda ykkur á að kompás þátturinn sem var 19/01/09 var rosalega fræðandi og upplýsandi um SSRI þunglyndislyfin og uppáskrifunum á lyfin hjá læknum. Það er hægt að nálgast hann á VODinu hjá Skjánum ef maður er ekki með stöð 2. Farið bara í vodið og fría þætti, fréttir og hann er þar inni. Ég mæli innilega með honum :)
kv
Eydís Inga
Hjúkku skvísur
21. janúar 2009 klukkan 17:43
Sælar, sælar er ekki kominn tími tli að fara úr ullarsokkunum og renna niður flíspeysunum og skemmta okkur pínu saman....
Nánar
Hjúkku skvísur
20. janúar 2009 klukkan 22:18
hæhæ stelpur :)
í sambandi við fjáröflun þá er tilvalið að fa að hjálpa til við vörutalnigar hjá einhvjerum búðum sem við getum . og 10-11 er með vörutalnigu 31.jan og okkur er velkomið að taka þátt , vörutalnign er eins og áður sagði 31.jan niður í miðbæ og er það 1100 kr á tíman og er penigurin lagður inn á reiknig , og því fleirisem mæta því meiri pennigur ef það eru einhvejrar fleiri spurngar þá bara spurja Hildi
Kv Guðrún og Hildur ;)
Hjúkku skvísur
05. janúar 2009 klukkan 11:56
Ég sendi e-mail á vistor og þetta svar fékk ég ....
Sæl Lára Kristín
Já vá þetta er búið að taka alveg hreint óvenjulangan tíma - og „kreppan" hefur heldur betur haft áhrif. En það sem ég get sagt þér er að síðustu fréttir eru þær að þetta ætti að koma til landsins upp úr miðjum janúar.
Ég læt þig vita um leið og þetta kemur.
Kv. Ásthildur
Hjúkku skvísur
31. desember 2008 klukkan 02:29
Sælar stelpur og vona að jólin hafi verið góð hjá ykkur

Það er nú meiri dugnaðurinn í stelpunni núna er að blogga í fyrsta skipti, já ég veit loksins.
En ég fékk þá hugmynd að við myndum taka okkur til og hafa saumaklúbb sem við gerum eitthvað í getur það verið hvað sem er, sauma, prjóna, mála, klippa myndum við hjálpast að og gefa hvor annari hugmyndir að einhverju sniðugu. Hugmynd mín er að hittast c.a 1 sinni í mánuði, ég er nú ekki búinn að skoða stundatöfluna nógu vel til að ákveða dag, en það væri gaman að sjá hvort fólki líst vel á þetta og skal ég halda fyrsta kvöldið heima hjá mér:)
hlakka til að sjá ykkur hressar og kátar í janúar og gleðilega hátíð:)
Kveðja Þuríður prjónasjúka

p.s ég er svo klár í þessu bloggi að ég var búinn að skrifa þetta alt í úrdráttar dálkin

er hægt að fara á námskeið í að blogga???